Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lyndisraskana - dagvinna
Við óskum eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan hjúkrunarfræðing til starfa með okkur á göngudeild lyndisraskana í geðþjónustu Landspítala.
Innan göngudeildar lyndisraskana starfa eftirfarandi meðferðarteymi:
- Áfallateymi
- Átröskunarteymi
- DAM-teymi
- Geðhvarfateymi
- Þunglyndis- og kvíðateymi
- Öldrunargeðteymi
Starfsvettvangur er innan eins eða fleiri ofangreindra teyma og felst starfið meðal annars í mati á geðrænum og líkamlegum einkennum, teymisvinnu og þjónustu við aðstandendur. Á deildinni er lögð áhersla á góðan starfsanda, þverfaglegt samstarf og stöðugar umbætur. Í boði eru fjölbreytt tækifæri til vaxtar með markvissri þjálfun og starfsþróun og boðið er upp á faglega leiðsögn. Hjúkrunarfræðingur í meðferðareiningu lyndisraskana er virkur þátttakandi í mótun framtíðarsýnar og eflingu hjúkrunar innan geðþjónustu Landspítala.
Starfshlutfall er 80-100% og unnið er í dagvinnu. Vinnuvika í fullu starfi er 36 klukkustundir.
Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2025. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánar samkomulagi.
- Þjónusta við notendur og aðstandendur þeirra
- Málastjórn, geðfræðsla og heildrænn stuðningur við andlega og líkamlega heilsu notenda
- Þátttaka í teymisvinnu og samvinna við önnur teymi/stofnanir
- Þátttaka í umbóta- og gæðaverkefnum
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- 2-5 ára reynsla af starfi í geðþjónustu er kostur
- Framhaldsmenntun í geðhjúkrun er kostur
- Reynsla af málastjórn er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
- Einlægur áhugi á geðhjúkrun
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og áhugi að þróa hlutverk hjúkrunar
- Sveigjanleiki og hæfni til aðlaga þjónustu að fjölbreyttum þörfum notenda
- Vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
- Stundvísi, áreiðanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni íslenska 4/5 enska 3/5