Sérnámsstaða í ofnæmis- og ónæmislækningum
Laus er til umsóknar sérnámsstaða í ofnæmis-og ónæmislækningum. Um er að ræða fullt sérnám að lokinni MRCP gráðu í lyflækningum eða sem undirsérgrein lyflækninga eftir full sérfræðiréttindi í lyflækningum.
Sérnámið er byggt á íslenskri marklýsingu, sem unnin er út frá grunni marklýsingar UEMS, og vottað af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnámið er í heild þrjú ár, það fer fram á Landspítala fyrstu tvö árin en síðan er gert ráð fyrir að viðkomandi læknir fari erlendis og ljúki tólf mánaða þjálfun. Sérnám í ofnæmis- og ónæmislækningum fer fram á Landspítala auk þess sem erlenda námsvist þarf til að ljúka fullgildu námi.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 23. febrúar en fimmtudaginn 26. febrúar er móttökudagur sérnáms, upphaf starfs getur einnig verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar.
Further information for applicants who do not speak Icelandic or have an Icelandic medical licence.
Sjá almennt kynningarmyndband um sérnám í læknisfræði og upplýsingar um sérnám á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
- Vinna og nám á göngudeildum og legudeildum ásamt vaktþjónustu almennra lyflækninga og undirsérgreinar skv. marklýsingu
- Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
- Kennsla lækna í sérnámi, sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
- Þátttaka í gæða- og vísindavinnu
- Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
- Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati
- Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
- Íslenskt sérfræðilækningaleyfi í lyflækningum eða MRCP gráðu í lyflækningum
- Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
- Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
- Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Umsækjendum er bent sérstaklega á að kynna sér marklýsingu sérnáms og reglugerð 856/2023.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf
- Mögulega umsagnaraðila
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Starfsferilskrá
- Kynningarbréf með persónulegum markmiðum umsækjenda varðandi starfið auk rökstuðnings fyrir hæfni.
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum.
- Tilgreind reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt yfirliti yfir birtar vísindagreinar (eða í ritrýni) sem umsækjandi er höfundur að.
- Staðfestingu um áætluð lok sérnámsgrunns ef því er ekki nú þegar lokið. Læknar sem lokið hafa námi erlendis og ætla að fá sérnámsgrunn metinn þurfa að senda erindi á kennsluráð sérnámsgrunns á Íslandi og fá staðfestingu þess efnis að þeirra nám sé sambærilegt íslenska sérnámsgrunnsárinu.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum eftir því sem við á. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali áskilur sér rétt til að falla frá áformum um ráðningu eða ráða fleiri en einn á grundvelli auglýsingar þessarar.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Tungumálahæfni: Íslenska 3/5
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérnámslæknir, læknir með lækningaleyfi