Hjúkrunarfræðingur á hjartadeild
Laus eru til umsóknar störf hjúkrunafræðinga á hjartadeild Landspítala. Við viljum ráða framsækna og metnaðarfulla hjúkrunarfræðinga með brennandi áhuga á hjúkrun hjartasjúklinga. Unnið er í vaktavinnu og ráðið í störfin frá 1. september 2024 eða eftir samkomulagi.
Hjartadeild er 34 rúma legudeild sem tilheyrir Hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu og er staðsett á 4. hæð á Landspítala á Hringbraut. Á deildinni sem er eina sérhæfða hjartadeildin á landinu starfar öflugur og áhugasamur hópur hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Góður starfsandi er ríkjandi sem og mikill faglegur metnaður og tækifæri til að vaxa í starfi. Lögð er áhersla á að taka vel á móti nýju fólki og veita góða einstaklingshæfða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
- Vera virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu verkefna á deild
- Fylgjast með nýjungum í hjartahjúkrun
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og áhugi á að starfa í teymi
- Hæfni til að vinna vel undir álagi
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, hjúkrun