Málastjóri með heilbrigðismenntun á göngudeild geðrofssjúkdóma
Heilbrigðismenntaður einstaklingur með brennandi áhuga á þverfaglegri vinnu með fólki með geðrænar áskoranir óskast til starfa í hlutverk málastjóra í geðrofs- og samfélagsgeðteymi Landspítala. Starfið býður upp á mörg spennandi tækifæri til starfsþróunar. Staðan er laus frá 1. september 2024 eða eftir samkomulagi og er starfshlutfall 80-100%. Eingöngu er um dagvinnu að ræða en sé óskað eftir vöktum er það möguleiki í samstarfi við aðrar deildir geðþjónustu. Með því móti öðlast viðkomandi haldbæra og góða reynslu af geðþjónustu og kynnist starfsemi fleiri deilda.
Meginverkefni teymanna er að veita fólki sem greinst hefur með alvarlega geðsjúkdóma og aðstandendum þeirra þverfaglega og einstaklingsmiðaða þjónustu. Þjónustan byggir á batamiðaðri hugmyndafræði og skaðaminnkandi nálgun. Markmið meðferðarinnar er að stuðla að bata, rjúfa félagslega einangrun og auka virkni og lífsgæði í daglegu lífi. Starfsemin er í stöðugri þróun og lögð er áhersla á virkt umbótastarf. Málastjórum standa til boða mikil tækifæri til vaxtar í starfi með markvissri handleiðslu og faglegum stuðningi. Lögð er áhersla á að allir málastjórar sæki námskeið í áhugahvetjandi samtalstækni. Í teyminu starfa læknar, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingar, þroskaþjálfi, atvinnuráðgjafar, jafningi og málastjórar með fjölbreyttan bakgrunn.
Hlutverk málastjóra er fjölbreytt og felst meðal annars í mati á einstaklingsbundnum þörfum, geðrænum einkennum og eftirfylgd, þróun meðferðaráætlana og vöktun og mat á árangri þjónustunnar. Málastjóri ber ábyrgð á almennum þáttum meðferðarinnar, samskiptum við aðstandendur og heldur utan um þá meðferð og endurhæfingu sem einstaklingurinn þarf á að halda.
Góður starfsandi ríkir á deild og starfsumhverfið er fjölskylduvænt. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Eygló deildarstjóra og Lilju Dögg aðstoðardeildarstjóra.
- Málastjórnun, þ.m.t. greining á þjónustuþörf og færni og gerð meðferðaráætlunar
- Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi
- Virk þátttaka í meðferð einstaklinga og stuðningi við aðstandendur
- Virk þátttaka í framþróun, uppbyggingu þjónustunnar og umbótastarfi
- Samskipti, hvatning, fræðsla, leiðbeiningar og heildrænn stuðningur
- Ýmis fjölþætt verkefni og þátttaka í umbótastarfi
- Faglegur metnaður og einlægur áhugi á að þjónusta og sinna einstaklingum með geðsjúkdóma.
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Heilbrigðismenntun sem nýtist í starfi, t.d. hjúkrun, sjúkraliðanám, sálfræði, félagsráðgjöf, þroskaþjálfun, iðjuþjálfun eða önnur heilbrigðismenntun er kostur
- Mjög góð samskiptahæfni
- Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi
- Góð tölvukunnátta
- Góð færni í íslensku og ensku, önnur tungumálakunnátta er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi eins og við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sálfræðingur, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, málastjóri