Skrifstofumaður/ heilbrigðisritari - dagvinna á göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Laus er til umsóknar staða skrifstofumanns/ heilbrigðisritara á göngudeild húð- og kynsjúkdóma í Fossvogi. Deildin er opin 5 daga vikunnar og þar fer fram meðferð, greining og fræðsla um húð- og kynsjúkdóma.
Við viljum ráða sjálfstæðan, þjónustulipran, metnaðarfullan og jákvæðan einstakling með framúrskarandi samskiptahæfni. Starfshlutfall er 100%, vinnutími er virka daga kl. 8-16. Vinnuvika í fullu starfi er 36 klukkustundir. Starfið er laust frá 1. ágúst 2024 eða eftir samkomulagi.
- Almenn ritarastörf á deild s.s. símsvörun, tímabókanir og upplýsingagjöf
- Ýmis verkefni í samráði við deildarstjóra
- Metnaður, þjónustulipurð og góð færni í mannlegum samskiptum
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð sem og frumkvæði í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Enskukunnátta æskileg
- Stúdentspróf, heilbrigðisritaramenntun og/ eða reynsla af ritarastörfum
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofustörf, móttaka, ritari, skrifstofumaður